Sæti grauturinn

Sæti grauturinn

Download excerpt

Þegar lítil fátæk stúlka heldur út í skóg til að afla matar fyrir hana sjálfa og móður hennar verður á vegi hennar gömul kona sem færir henni ofurlítinn pott. Pottinum fylgir töfraþula sem framkallar dýsætan og gómsætan graut handa þeim mæðgum. Eitt sinn ákveður móðir stúlkunnar að fara með töfraþuluna og borðar sig sadda af grautnum. Það fer þó ekki betur en svo að móðir stúlkunnar veit ekki hvernig hún á að fá pottinn til að hætta grautargerðinni með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB