Ævintýrið um piltinn, sem fór út í heiminn til að læra að hræðast

Ævintýrið um piltinn, sem fór út í heiminn til að læra að hræðast

Ótti hefur verið vinsælt viðfangsefni höfunda í gegnum aldirnar og túlkanir þeirra á hugtakinu margvíslegar. Í þessu ævintýri Grimmsbræðra hefur aðalsöguhetjan þó aldrei orðið hræddur og þekkir þ.a.l. ekki óttann. Hann leggur því land undir fót til að þess að læra að verða hræddur.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Détails du livre

Commentaires

Il n'y pas encore de commentaire pour ce livre.

Vous aimerez aussi

EPUB

Livre audio (Fichier MP3)

Livre audio (Fichier MP3)

Livre audio (Fichier MP3)