Töskumorðið

Töskumorðið

Í desember 1993 og janúar 1994 var óvenjumikil rigning í Danmörku og þegar regnið var sem mest þann 5. og 6. janúar mældist úrkoman 132 mm, bara þessa tvo daga. Þetta óvenjulega veðurfar leiddi af sér háa vatnsstöðu í straumvötnum og hafði áhrif á hafstrauma. Þessi vatnsveður höfðu það í för með sér að litlu mun- aði að hugtakið ,,fullkomið morð" yrði að veruleika.  Fimmtudaginn 6.janúar kom örvæntingarfull móðir til lögreglunnar í Århus. Hún greindi frá því, með grátstafinn í kverkunum, að 31 árs gömul dóttir hennar, Kirsten, væri horfin. Þetta var upphafið af einu óhugnanlegasta morðmálinu sem hafði komið við sögu lögreglunnar í Århus, jafnvel í allri Danmörku. Við rannsókn- ina var komið víða við og hún leiddi m.a. af sér lagabreytingu og yfirheyrslur um siði og venjur þjóðflokka í Afríku. 

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)