Svaðilför á sæþotu

Svaðilför á sæþotu

Það var blíðskaparveður að morgni fimmtudagsins 16. ágúst 2001. Farþegaferjan Norræna sigldi lygnan sjó inn mynni Seyðisfjarðar en ferjan hafði lagt af stað frá Bergen í Noregi tveimur dögum fyrr. Lítillega bætti í vindinn svo að litlar bárur dönsuðu á haffletinum. Þær voru þó það smáar að þær höfðu engin áhrif á siglingu ferjunnar þar sem hún nálgaðist áfangastaðinn í botni fjarðarins. Þær höfðu aftur á móti áhrif á sjóhæfni þess farartækis sem kemur við sögu í þessari frásögn. Ferjan var aðeins á eftir áætlun og það átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá sem höfðu gert ráð fyrir að geta smyglað um 2,3 kg af hassi inn í landið án þess að nokkur yrði þess var.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)