Smásögur: Veðmálið

Smásögur: Veðmálið

Ungverji sem er sannkallaður kvennabósi hittir rússneska aðalskona á flótta í París. Skoðanir þeirra varðandi samband kynjanna stangast á. Ákveður hann að veðja við hana að hún muni vilja hitta hann aftur, en þá þyrfti hún að hundsa sína eigin réttlætiskennd.

Sögurnar sem eru hluti af smásagnasafni Davíðs Þorvaldssonar, eru: Björn formaður, Árni munkur, Skógarinn litli frá Villefranche-sur-mer, Veðmálið, Skólabræðurnir og Úr dagbók vinar, en bókina tileinkað hann móður sinni eftir andlát hennar. Bókin fékk mjög góða dóma á Íslandi og var því haldið fram að höfundur hefði einstaka innsýn í sálarlíf manna. Sögurnar bera allar stílbragð Davíðs, sem skrifaði listilega vel og í myndlíkingum sem krefjast þess að lesandi lesi milli línanna ásamt því að boðskapur sagnanna endurspegla oft tilfinningaríkar reynslur úr lífi höfundar.

Ekki þekkja margir nafn Davíðs Þorvaldssonar þrátt fyrir hæfileika hans og sköpunargáfu sem rithöfundur. Hann lifði stutta ævi vegna veikinda, en gaf út tvö smásagnasöfn, Kalviði og Björn formaður, en það síðarnefndna þýddi hann sjálfur á ensku til útgáfu ásamt því að sögur hans voru birtar í virtu frönsku riti. Verk hans endurspegla gildi Davíðs, sem vildi leggja alþýðunni lið með lýsingum og stíl sagnanna, sem jafnan bera þann boðskap að sá sem þurft hefur að hafa fyrir lífinu er vitrari en sá sem ekkert hefur reynt.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB