PJ Masks - Vertu hetja!
PJ Masks - Vertu hetja!

PJ Masks - Vertu hetja!

Það er kominn tími til þess að vera hetja! PJ Masks elska að fara út í nóttina til að bjarga deginum. Í gegnum mörg ævintýri hafa þau lært mikilvægar lexíur um hvernig hetjur þau geta verið: vinna saman sem heild, læra af mistökum sínum og svo margt fleira. Komdu með og lærðu allt um það hvernig þú getur orðið hetja!

Komdu með Catboy, Gekko og Owlette í ofurhetjuævintýri! Sigldu inn í nóttina í kattarbílnum, uglufauginni eða gekkóbílnum til þess að koma í veg fyrir Romeo, Luna Girl, Night Ninja, Úlfakrakkana og öll hin illmennin frá því að taka yfir borgina. Háttatíminn er rétti tíminn til þess að berjast gegn glæpum. Klæddu þig í náttfötin og farðu út í nóttina til þess að bjarga deginum, PJ Masks sýna þér hvernig. Það er tími til þess að vera hetja!

PJ Masks var upprunalega sería í franskri myndabók. Serían öðlaðist vinsældir á heimsvísu þegar hún var sýnd í sjónvarpi árið 2015. Í hinum vinsælu Netflix og Disney seríum, fylgjumst við með Amaya, Connor og Greg sem eiga öll töfra náttföt sem geta breytt þeim í ofurhetjur á nóttinni. Amaya verður Owlette, Connor verður Catboy og Greg verður Gekko. Þegar nóttin skellur á, taka þau sig saman til þess að berjast á móti óvinum sínum Romeo, Luna Girl, Night Ninja, Úlfakrökkunum, Motsuki, Octobella, Pharaoh Boy og Munku-Gu til þess að bjarga borginni. PJ Masks geta gert allt með ofurkröftum sínum, ofurkattarendum, ofuruglufjöðrum og ofurgekkóskildum, en að lokum er öflugasta vopn þeirra alltaf vináttan og samvinnan. Serían hjálpar börnum að sigrast á næturkvíða og kennir gildi þess að vera góð manneskja. PJ Masks™ og tilheyrandi vörumerki eru í eigu eOne/Hasbro og eru notuð með leyfi Hasbro. © 2021 Hasbro

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)