Það er eins og allt svæðið hafi verið sprengt í loft upp. Langar sprengingadrunur hrista varnarstoðir Þjóðverjanna. Svo heyrast öskrin. Þeir sjá glytta í skugga Lilla í gegnum eldinn. Lilli stendur við skurð óvinanna með vélbyssuna á mjöðminni. Glóðarkúlurnar spýtast úr vélbyssukjaftinum. Það er óðagot. „Hvílíkir djöflar" hugsar rússneski liðsforinginn með sér af aðdáun.
Sven Hazel var sendur í fangahersveit sem sjálfboðaliði í þýska hernum. Með bláköldu raunsæi fangar hann hörmungar stríðsins, glæpi nasista og kaldhæðinn og grófan húmor hermanna. Bækur hans hafa selst í 50 milljón eintökum og eru vinsælustu stríðsbækur allra tíma.Book details
-
Publisher
-
Language
Icelandic -
Publication date
-
Read by
-
Theme
-
Series