Þúsund og ein nótt: Inngangur

Þúsund og ein nótt: Inngangur

Scarica anteprima

Sjasenan er á leið sinni að heimsækja bróður sinn, Sjarjar konung, þegar hann kemst að því að kona hans hafi haldið fram hjá honum með matreiðslumanni þeirra. Hann drepur þau bæði, án þess að segja nokkrum frá því, og heldur svo áfram veginn til heimsóknarinnar. Eina nótt, á meðan Sjarjar er á veiðum, sér Sjasenan konu bróður síns í faðmlögum við svartan þræl. Eftir að hann hefur sagt bróður sínum frá því ákveða bræðurnir tveir að halda að sjávarströndinni.

Mun einhver komast að því að Sjasenan drap konu sína? Hverju mun Sjarjar taka upp á eftir að bróðir hans segir honum frá því sem hann varð vitni að? Hvað munu bræðurnir tveir finna við ströndina? Finndu svörin í margslungnu sögunni um Sjarjar konung og bróður hans Sjasenan.

Þetta er fyrsta sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".

Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.

Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.

Dettagli libro

Recensioni

Nessuna recensione per questo libro.

Ti potrebbe interessare

Audiolibro EPUB