Anteprima Scarica anteprima

Ungur listamaður þjáist af nánast ólæknandi fullkomnunaráráttu. Það er sama hversu fögur verkin hans eru, hann eyðileggur þau öll, því hann er ekki ánægður með útkomuna. Dag einn á hann ferð framhjá furstahöll, og sér hina undurfögru dóttur furstans. Slíka fegurð hefur hann aldrei fyrr augum litið, hann verður óðara ástfanginn af henni og flýtir sér heim til að móta mynd hennar úr leir.

Styttan af stúlkunni verður engu öðru lík. Allir dáðst að henni og ungi listamaðurinn ákveður að móta hana í marmara. Þá vill svo heppilega til að faðir hennar, furstinn, á leið hjá og festir óðara kaup á hinni fögru marmaramynd. Listamaðurinn keppist við að ljúka verkinu og færa það til furstahallarinnar og líta ástina sína augum. En óendurgoldin ást getur valdið miklum straumhvörfum, og það á ungi maðurinn eftir að reyna.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

Dettagli libro

Recensioni

Nessuna recensione per questo libro.

Ti potrebbe interessare

EPUB

EPUB

Audiolibro

Audiolibro