Sagan af hinum öðrum förumunki og kóngssyni (Þúsund og ein nótt 31)

Sagan af hinum öðrum förumunki og kóngssyni (Þúsund og ein nótt 31)

Scarica anteprima

Annar förumunkurinn var því miður ekki með betri lukku en sá fyrsti. Hann var auðugur prins sem ferðaðist mikið. Þegar hann endar í konungsríki einu verður hann ástfanginn af dóttur konungs. Dóttirin var hins vegar haldið sem fanga af anda einum. Förumunkinum er hins vegar sama um það en andinn nær á endanum haldi á þeim. Prinsessan er drepin og förumunknum er breytt í apa. Hann sleppur í burt í annað konungsríki en leyndarmál hans fylgja honum hvert sem hann ferðast. Hvað mun gerast ef leyndarmál hans kemst upp á yfirborðið?

Þetta er 31. sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".

Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.

Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.

Dettagli libro

Recensioni

Nessuna recensione per questo libro.

Ti potrebbe interessare