KF Mezzi 5 - Níu í liði

KF Mezzi 5 - Níu í liði

Scarica anteprima

KF Mezzi eru loksins komin með eigið félagsheimili og þau ætla að vígja það með því að gista þar og horfa á hryllingsmyndir! Rómantíkin blómstrar milli Kristínar og Tómasar, en fljótlega kemst Tómas að svolitlu sem kemur upp á milli þeirra og gerir þeim erfitt fyrir að ná sáttum. Á meðan allt þetta er að gerast er liðið að sjálfsögðu á fullu í boltanum, á heimavelli og úti og ýmislegt kemur upp á í hita leiksins.

KF Mezzi er sería af fótboltabókum eftir Daniel Zimakoff. Serían fjallar um vinina Tómas, Sölva og Berg og gleði þeirra og vandamál með þjálfara, félaga og andstæðinga. Þeir taka þátt í að stofna fótboltaliðið KF-Mezzi, sem er blandað lið, því það eru líka stelpur með í liðinu.

Daniel Zimakoff fæddist árið 1956 og er lærður bókasafnsfræðingur, en hefur starfað við ýmislegt, hann vann meira að segja sem leikari áður en hann gerðist rithöfundur. Frá árinu 1980 hefur hann skrifað fjöldann allan af barnabókum og vann til barnabókaverðlauna danska menningarmálaráðuneytisins árið 2004. Þegar hann er ekki upptekinn við að skrifa spilar hann fótbolta, blak, veggtennis, tennis, les bækur, horfir á sjónvarp og keyrir mótorhjól.

Dettagli libro

Recensioni

Nessuna recensione per questo libro.

Ti potrebbe interessare

Audiolibro

Audiolibro

Audiolibro