Gæsastúlkan fjallar um undurfríða konungsdóttur sem er ætlað að giftast ungum konungssyni í fjarlægu landi. Móðir hennar sendir hana af stað með fylgdarliði og drjúgan heimanmund. Í fylgdarliði konungusdótturinnar er Falada, talandi hestur konunugsdótturinnar og herbergisþerna hennar. Konungsdóttirin á allt sitt undir herbergisþernunni og má sín lítils gegn klækjabrögðum hennar á leið þeirra til konungshallarinnar.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.Dettagli libro
-
Editore
-
Lingua
Islandese -
Data di pubblicazione
-
Letto da
-
Traduttore
-
Argomento
-
Serie
-
Pubblico