Sagan af Sobeide (Þúsund og ein nótt 34)

Sagan af Sobeide (Þúsund og ein nótt 34)

Sobeide segir frá örlögum tveimur eldri systra sinna. Líf þeirra einkennist af ákvörðunum sem stjórnast af peningum og ást, en Sobeide tekur alltaf á móti þeim með opið fang og hjarta fullt af ást. En hvað mun gerast þegar Sobeide sjálf finnur loksins ástina? Munu systur hennar standa við hlið hennar eins og hún hefur gert fyrir þær?

Þetta er 34. sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".

Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.

Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.

Détails du livre

Commentaires

Il n'y pas encore de commentaire pour ce livre.

Vous aimerez aussi

Livre audio (Fichier MP3) EPUB

Livre audio (Fichier MP3) EPUB