Sagan af Sjabeddín fróða

Sagan af Sjabeddín fróða

Þegar sóldán Egyptalands bíður öllum fræðimönnum ríkisins í höll sína hefjast þrætur á milli þeirra. Sóldáninn, sem sjálfur er enginn trúmaður, neitar að trúa sögum vitringanna um guð almáttugan. Þegar fréttirnar berast Sjabbedín fróða ákveður hann að fara sjálfur til hallar sóldánsins og gerast þá óhugsandi atburðir...

Þetta er tíunda sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".

Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.

Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.

Détails du livre

Commentaires

Il n'y pas encore de commentaire pour ce livre.

Vous aimerez aussi

Livre audio (Fichier MP3) EPUB

Livre audio (Fichier MP3)

Livre audio (Fichier MP3) EPUB