Hún amma
Hún amma

Hún amma

Hún amma er orðin gömul, en þó er hún bæði falleg og vitur. Engin segir sögur eins og hún og margt hefur hún lært á langri ævi. Ein eign er henni kærust, en það er þurrkuð rós, sem hún geymir inni í sálmabókinni sinni.

Fyrir kemur að amma opnar sálmabókina og virðir rósina fyrir sér. Vöknar henni þá um augun og tárin falla á þurrkað blómið. Þá er eins og rósin gamla lifni, blöðin breiðist út og ilminn leggi um herbergið. Amma verður ung á ný, glóbjört og brosandi, fögur stúlka á ástarfundi.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

Detalles de eBook

Opiniones de clientes

No reviews have been written for this book.

También te gustará

Audiobook

Audiobook

Audiobook

Audiobook