Valdimar munkur

Valdimar munkur

Sagan gerist í Moskvu á seinni hluta 17. aldar, þegar Rússland er í upplausn og valdabarátta ríkjandi. Hér segir frá Rúrik Nevel, byssusmið sem verður ástfanginn af ungri greifynju. Út frá því spinnst spennuþrungin frásögn, þar sem við sögu kemur Pétur hinn mikli dulbúinn sem munkurinn Valdimar. Sagan kom fyrst út sem framhaldssaga í tímaritinu New York Ledger árið 1856, en hefur verið endurútgefin þó nokkrum sinnum og þýdd á fjölda tungumála.

Sylvanus Cobb, yngri (1823-1887), skrifaði um 120 skáldsögur og fleiri en 800 smásögur um ævina. Hann sérhæfði sig í sögum sem voru spennandi og gátu haldið lesendum föngnum, enda skrifaði hann fyrst og fremst framhaldssögur fyrir bandarísk vikurit. Hann notaði ýmis höfundarnöfn, þar á meðal: Austin Burdick, Charles Castleton, Walter B. Dunlap, Enoch Fitzwhistler, Dr. J. H. Robinson, Dr. S. LeCompton Smith, Symus pílagrímur og Amos Winslow yngri. Valdimar munkur er frægasta saga hans.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB