Tími veiðimánans

Tími veiðimánans

Download excerpt

Í skógi einum í Sviss er sérkennilegur klettur. Sagan segir að ef hann er heimsóttur á tíma veiðimánans sjái maður framtíðarmaka sinn. Cordelia Grant er ensk stúlka í heimavistarskóla í Sviss sem ákveður að heimsækja klettinn með vinkonum sínum til að sjá hvort sagan sé sönn. Og þær verða ekki fyrir vonbrigðum. Í skóginum hitta þær dularfullan en myndarlegan mann sem sýnir Cordeliu alveg sérstaka athygli. Cordelia snýr aftur til Englands, en getur ekki hætt að hugsa um þennan ókunna, heillandi mann. Þegar hann birtist við dularfullar aðstæður á fjölskylduheimili hennar fer hún að halda að þjóðsagan um klettinn sé kannski sönn...

Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

EPUB