Þúsund og ein nótt: Sögusafn

Þúsund og ein nótt: Sögusafn

Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í sögunum sem sagðar eru yfir í þúsund og eina nótt. Það er ekki furða að konungur getur ekki lifað án þess að heyra heillandi sögur Sjerasade, enda eru þær stútfullar af visku og ævintýrum. Hlustaðu á 46. sögur í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".

Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.

Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB