Norræn Sakamál 2008

Norræn Sakamál 2008

Hér kemur fyrir augu þín áttunda bókin í ritröðinni Norræn sakamál. Í þessari bók eru átta íslenskar sögur en mörg málanna vöktu verulega athygli þegar þau voru til meðferðar í dómskerfinu og tóku talsvert pláss í fjölmiðlum. Þetta eru fjölbreyttar sögur sem fjalla um mjög mismunandi afbrot sem þó eru öll áhugaverð og spennandi. Meðal annars má nefna frásögnina af dauða ungbarnsins sem er einstakt mál í sinni röð hér á landi enda fór það alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Hún er líka sérstök, frásögnin af umferðarslysinu sem var flóknara í rannsókn en mörg morðmál en var að lokum upplýst að fullu. Sagan um hæstaréttarlögmanninn, sem lék mörgum skjöldum til að tæla ungar stúlkur, er merkileg og hana ættu allir að lesa til að kunna að varast slíkar gildrur. Auk þessara íslensku frásagna eru margar sögur frá hinum Norðurlöndunum. Þær eru ekki síður áhugaverðar og vel þess virði að lesa þær. Þar má t.d. nefna söguna um ungu stúlkuna sem giftist manninum sem hún elskaði en hafði ekki fengið samþykki fjölskyldu sinnar, sem hjálpaðist að við að koma henni fyrir kattarnef. Þar er líka frásögnin af nauðgararanum sem fann fórnarlömb sín á netinu og notaði það til að tæla stúlkurnar til sín. Sagan um dauðaáætlunina er miklu líkari lygasögu en sannleikanum en er samt sönn. Blom-Petterson-málið er saga um hjónaband sem segja má að hafi endað úti í skógi. Þetta eru fá dæmi en engin af þessum sögum er annarri lík.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File) EPUB

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)