Laxdæla saga 

Laxdæla saga 

Laxdæla saga segir frá landnámi konu að nafni Auður (Unnur) djúpúðga, sem nam land í Dalasýslu og afkomendum hennar. Sagan gerist að miklu leyti í Laxárdal og dregur þaðan nafn sitt. Helstu atburðir sögunnar snúast um ástarþríhyrning þeirra Guðrúnar Ósvífursdóttur, Kjartans Ólafssonar og Bolla Þorleikssonar.

Báðir sóttust þeir frændur, Kjartan og Bolli, eftir hylli Guðrúnar. Upphaflega átti Guðrún vingott við Kjartan, þar til hann hélt til Noregs ásamt Bolla frænda sínum. Hugðust þeir koma heim að þremur árum liðnum. Bolli kom svo að utan á undan Kjartani með þau tíðindi að Kjartan ætti í sambandi við aðra konu þar ytra. Sjálfur bað hann þá um hönd Guðrúnar en þegar Kjartan kemur heim aftur upphefst mikið hefndarævintýri.

Laxdæla er oft sögð vera harmþrungnust en jafnframt einna rómantískust Íslendingasagnanna og hefur þeirri spurningu verið varpað fram hvort höfundur hennar sé hugsanlega kona.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

EPUB