Download excerpt

Eftir að haninn og hænan höfðu farið á stúfana í hnetuleit og étið hvor sína fyllina af hnetum fóru þau að rífast um það hvernig þau ættu að komast heim. Þau voru pakksödd og nenntu ekki fyrir nokkra muni að ganga heim. Hananum tekst að snara önd fyrir öfurlítinn vagn sem hann hafði útbúið og þannig bruna þau af stað. Seint um kvöldið koma þau að gistihúsi og gestgjafinn samþykkir eftir töluverðar mótbárur að hleypa þeim inn. Það renna þó á hann tvær grímur þegar hann áttar sig á því hvernig í pottinn er búið.

Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Book details

Reviews

No reviews have been written for this book.

You will also like

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)

Audiobook (MP3 File)