Ævintýrið um Brimborgarsöngvarana fjallar um kött, hænu, veiðihund og asna sem eru staðráðin í að gerast tónlistarmenn í Bremen. Hópur ræningja kemur í veg fyrir áform þeirra og setja fyrirætlanir dýranna um tónlistarferil í Bremen í uppnám. Ævintýrið fjallar um mótlæti, frelsi og vináttu. Sagan er vinsæl til leikgerðar og hefur víða verið sett upp á fjölum leikhúsa. Þá hafa Brimborgarsöngvararnir verið kvikmyndaðir og búnar hafa verið til teiknimyndir og söngleikir.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.Book details
-
Publisher
-
Language
Icelandic -
Publication date
-
Read by
-
Translator
-
Theme
-
Series
-
Audience